„Þjóðbanki Íslands“. Peningavald, sjálfstæði seðlabanka og lýðræði eftir fyrri heimsstyrjöld
Ártal:
2025
Bls:
53-87
DOI:
10.33112/saga.63.1.1
Efnisorð:
Árið 1927 var Landsbanki Íslands endurskipulagður sem fyrsti íslenski
seðlabankinn með stjórn peningamála á höndum. Til þess að leggja
grunn að endurreisn hins alþjóðlega fjármálakerfis eftir upplausn fyrri
heimsstyrjaldarinnar höfðu Þjóðabandalagið, Bretland og Bandaríkin
forgöngu um að stofnaðir væru sjálfstæðir seðlabankar — allt frá
Grikk landi og Búlgaríu til Austurríkis og Þýskalands og áfram til
Eystra saltsríkjanna og Íslands — eftir almennri forskrift sem til varð á
fjármálaráðstefnum Þjóðabandalagsins í Brussel árið 1920 og Genúa
árið 1922. Í þessari grein verður stofnun íslenska seðlabankans árið
1927 sett í alþjóðlegt samhengi þriðja áratugar síðustu aldar á mótunar
tímabili nútímalegrar seðlabankastjórnunar og mátuð við þær hug
myndir sem efstar voru á baugi um skipan efnahagsmála. Færð verða
rök fyrir því að Landsbanki Íslands hafi verið endurmótaður sem full
gildur seðlabanki með sambærilegum hætti og aðrir nýir evrópskir
seðlabankar þar sem megináhersla var lögð á að framselja peninga
valdið til óháðrar stofnana sem væru sjálfstæðar gagnvart lýðræðisleg
um áhrifum á vettvangi stjórnmálanna.