Skip to content

Félagi kona
Kvenfélag sósíalista og stjórnmálaþátttaka kvenna
í Sósíalistaflokknum 1938–1968

Höfundur:
Rakel Adolpsdóttir
Birtist í
Saga: Tímarit Sögufélags 2025 LXIII: I
Ártal:
2025
Bls:
118-154
DOI:
10.33112/saga.63.1.3
Rannsóknir á kommúnistum og sósíalistum á Íslandi hafa verið sérlega blómlegar undanfarna áratugi en minna hefur farið fyrir umfjöllun um þátt kvenna í þessum stjórnmálahreyfingum. Hér er fjallað um þátt töku kvenna í Kommúnistaflokknum og Sósíalistaflokknum og skoðað hvernig þær unnu að því að skapa sér rými til pólitískrar þátttöku og áhrifa. Sérstaklega er fjallað um Kvenfélag sósíalista en töluverð starf semi fór fram í félaginu, þrátt fyrir ótta sumra sósíalískra kvenna um að sérstakt kvenfélag myndi leiða til einangrunar kvenna í flokknum. Ítarleg athugun á skjalasafni þess leiðir í ljós margar ólíkar leiðir sem sósíalískar konur fóru til að vinna að réttindamálum kvenna og félags legum umbótum. Áhugaleysi karlkyns félaga þeirra á baráttumálum kvennanna og lítill vilji þeirra til að stuðla að jafnræði kynjanna innan flokksins olli mörgum þeirra djúpstæðum vonbrigðum.