Félagi kona
Kvenfélag sósíalista og stjórnmálaþátttaka kvenna
í Sósíalistaflokknum 1938–1968
Ártal:
2025
Bls:
118-154
DOI:
10.33112/saga.63.1.3
Rannsóknir á kommúnistum og sósíalistum á Íslandi hafa verið sérlega
blómlegar undanfarna áratugi en minna hefur farið fyrir umfjöllun um
þátt kvenna í þessum stjórnmálahreyfingum. Hér er fjallað um þátt
töku kvenna í Kommúnistaflokknum og Sósíalistaflokknum og skoðað
hvernig þær unnu að því að skapa sér rými til pólitískrar þátttöku og
áhrifa. Sérstaklega er fjallað um Kvenfélag sósíalista en töluverð starf
semi fór fram í félaginu, þrátt fyrir ótta sumra sósíalískra kvenna um
að sérstakt kvenfélag myndi leiða til einangrunar kvenna í flokknum.
Ítarleg athugun á skjalasafni þess leiðir í ljós margar ólíkar leiðir sem
sósíalískar konur fóru til að vinna að réttindamálum kvenna og félags
legum umbótum. Áhugaleysi karlkyns félaga þeirra á baráttumálum
kvennanna og lítill vilji þeirra til að stuðla að jafnræði kynjanna innan
flokksins olli mörgum þeirra djúpstæðum vonbrigðum.