Skip to content

Ný bylgja og gömul sólarlagsrómantík
Ósvaldur Knudsen og fyrstu kynslóðaskiptin
í íslenskri kvikmyndagerð

Höfundur:
Gunnar Tómas Kristófersson
Birtist í
Saga: Tímarit Sögufélags 2025 LXIII: I
Ártal:
2025
Bls:
88-117
DOI:
10.33112/saga.63.1.2
Árið 1962 markaði kynslóðaskipti í íslenskri kvikmyndagerð. Tvær kvikmyndir sem komu út það ár eru táknrænar fyrir umskiptin. 79 af stöðinni táknaði hápunkt og endalok eldri kynslóðar íslenskra kvik myndagerðarmanna, en Slys eftir Reyni Oddsson markaði upphaf nýrrar stefnu. Nýju kvikmyndagerðarmennirnir sem komu heim frá námi erlendis og hófu að móta nýja strauma undir áhrifum erlendrar nýbylgju gagnrýndu skort á ríkisstuðningi við kvikmyndagerð, sem og framlag hinna eldri til kvikmyndagerðar. Þeir beindu spjótum sínum ekki síst að Ósvaldi Knudsen. Hann stóð hins vegar á mörkum þess ara tímabila, þróaði sína fagurfræði í takti við nýja tíma og kom mynd um sínum víða á kvikmyndahátíðir erlendis. Hann veitti hinni ungu kynslóð samkeppni, sem gerði það að verkum að erfitt var fyrir þá að líta fram hjá honum.