Skip to content

Gunnar Þór Bjarnason

Gunnar Þór Bjarnason fæddist á Ísafirði 1957. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík, lauk BA-prófi frá í sagnfræði og þýsku frá Háskóla Íslands, MA-prófi í alþjóðasamskiptum frá sama skóla og stundaði framhaldsnám í sagnfræði í Þýskalandi. Hann kenndi í mörg ár við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og hefur lengi verið stundakennari við Háskóla Íslands. Gunnar Þór hefur sinnt ýmsum félags- og útgáfustörfum innan sagnfræðinnar; var annar stofnenda Sagna, ritstýrði Nýrri sögu um hríð og sat í stjórn Félags sögukennara, var formaður Félags um átjándu aldar fræði í fjögur ár og sat í stjórn Sögufélags.

Efni eftir höfund:

Greinar

Ritdómar

Annað efni