Skip to content
Saga: Tímarit Sögufélags 2022 LX:I
Útgáfuár
2022
Tölublað
55:1
Ritstjórar
Kristín Svava Tómasdóttir og Vilhelm Vilhelmsson
Blaðsíðufjöldi
270
ISSN
0256-8411

Saga: Tímarit Sögufélags 2022 LX:I

Forsíðu Sögu prýðir púði eftir Karólínu Guðmundsdóttur vefara. Gerður Róbertsdóttir skrifar um Karólínu og verk hennar og byggir á rannsókn sem fram fór á Borgar sögusafni Reykjavíkur í aðdraganda sýningar um Karólínu sem stendur yfir á Árbæjarsafni.
Í álitamálum voru að þessu sinni fræðimenn beðnir að mæla með bókum sem komið hafa út á síðasta áratug.
Tvær ritrýndar greinar birtast í heftinu. Erla Hulda Halldórsdóttir og Ragnheiður Kristjánsdóttir skrifa um atkvæðagreiðslur í heimahúsum í þingkosningunum 1923 og lýðveldiskosningunum 1944 og þau viðhorf til kvenkjósenda og nýfenginna réttinda þeirra sem birtast í fyrirkomulaginu og umræðum um það. Karen Oslund fjallar í sinni grein um Ferðabók Árna Magnússonar frá Geitastekk og setur hana í samhengi við fræðilegar áherslur sem tvinna saman heimssögulega greiningu og einsögulega aðferð á nýstárlegan máta.
Viðhorfsgreinar heftisins eru þrjár. Hafdís Erla Hafsteinsdóttir og Erla Hulda Halldórsdóttir svara hvor um sig grein Sigurðar Gylfa Magnússonar um kvenna- og kynjasögu úr síðasta hefti. Bergsveinn Birgisson skrifar um mál sem hefur vakið töluverða athygli og snýst um það hvort Ásgeir Jónsson hafi sótt til skrifa Bergsveins án tilhlýðilegra heimildatilvísana í bók sinni, Eyjan hans Ingólfs, sem kom út á síðasta ári.
Stefán Bogi Sveinsson skrifar grein fyrir þáttinn Í skjalaskápnum um spennandi skjalafund á Seyðisfirði, þar sem löngu týnd eintök af handskrifuðu austfirsku kvennatímariti frá aldamótunum 1900 komu í leitirnar.
Loks eru í heftinu 15 ritdómar, ein ritfregn og ársskýrsla stjórnar Sögufélags.