Útgáfuár | 1994 |
---|---|
Tölublað | 32 |
Ritstjórar | Gísli Ágúst Gunnlaugsson og Sigurður Ragnarsson |
Blaðsíðufjöldi | 332 |
ISSN | 0256-8411 |
Saga: Tímarit Sögufélags 1994 XXXII
Í 32. árgangi Sögu, sem kom út árið 1994, eru birtar sjö sagnfræðigreinar. Gunnar Karlsson og Helgi Skúli Kjartansson rita saman um plágurnar miklu á Íslandi, Hermann Pálsson birtir drög að sköpunarsögu Gretlu, Sigurjón Páll Ísaksson ritar um Magnús Pálsson og Möðruvallabók, Guðmundur Jónsson skrifar stutta grein þar sem mannfjöldatölur 18. aldar eru teknar til endurskoðunar, Kristján Sveinsson ritar um viðhorf Íslendinga til Grænlands frá 18. til 20. aldar, Gerald D. Anderson fjallar um munnlega geymd af sögu Bandaríkjamann meðal Vestur-Íslendinga í Norður-Dakota og Veturliði Óskarsson fjallar um skírnarsár Bertels Thorvaldsen í Róm.
Greinar
Annað efni
Ritdómar
No data was found
No data was found