Skip to content
Saga: Tímarit Sögufélags 2017 LV: I
Útgáfuár
2017
Tölublað
55:1
Ritstjórar
Erla Hulda Halldórsdóttir og Vilhelm Vilhelmsson
Blaðsíðufjöldi
234
ISSN
0256-8411

Saga: Tímarit Sögufélags 2017 LV: I

Forsíðumyndin á Sögu er að þessu sinni af bjöllunni í Helgafellskirkju og fjalla þær Steinunn Kristjánsdóttir og Vala Gunnarsdóttir um hana. Álitamálin eru Sagan og samtíminn: Flóttamenn og fólksflutningar og fjalla þau Sverrir Jakobsson, Íris Ellenberger, Guðmundur Hálfdanarson og Hallfríður Þórarinsdóttir um þau. Að venju eru birtir ritdómar og ritfregnir í Sögu.

Tvær ritrýndar greinar eru í heftinu. Kristrún Halla Helgadóttir fjallar um Manntalið 1729 og fyrirætlanir um flutninga fólks til Grænlands. Þorgerður H. Þorvaldsdóttir er með grein sem heitir „Því miður eruð þér ekki á kjörskrá“ og fjallar um samtvinnun sem greiningartæki i sagnfræði.